

hvað eiga þessir tveir sameginlegt?
- að vera forsetar (þó mér sé fyrirmunað að skilja hvernig þeir fóru að því
- Fáfræði
- Stórvægilega afneitun
- Upplýsingaskort
- andúð mína
ef maður horfir vel á myndirnar eru þeir ekkert ólíkir félagarnir, Mahmoud Ahmadinejad gæti verið íranska útgáfan af bush og öfugt. Það er engu að síður mín trú að sá neðri hafi jafnvel færra fram að færa í upplýstu samfélagi en hinn, og þá er mikið sagt. Ahmadinejad tilkynnti einmitt nemendur columbia háskóla í bandarríkjunum um að engir hommar væru í íran, mér dettur ekki í hug að draga það í efa, það væru heldur engir hommar á íslandi ef við slátruðum þeim jafnóðum eins og þeir gera þar. Hvað staðhæfingar um hryðjuverkin í bandarríkjunum varðar held ég þó að kallinn sé mun nærra lagi en Bush, ég er allavega tilbúin að skoða flesta aðra möguleika en þá sem bandarrískir fjölmiðlar mata heimsbyggðina á...lái mér hver sem vill.
Mér finnst raunveruleikafyrring hressandi upp að ákveðnu marki, viðurkenni jafnvel að þjást af henni sjálf hvað sumt varðar, ég tel mig þó töluvert veruleikatengdari en þá félaga og þó myndi ég aldrei fara í forsetaframboð, ætlast til þess að vera kosinn...og það sem furðulegast er af öllu, verða það (þó manni finnist hálf asnalegt að tala um lýðræði þegar kemur að mið-austurlöndum).
Ef Ástþór Magnússon hefði orðið forseti íslands væru íslendingar að e-rju leiti í stíl við íran og bandarríkin, að blóðbaðinu undanskildu að sjálfsögðu.